Ans - sköpun að verki
Ans er ráðgjafar- og verktakafyrirtæki, sem byggir á áratuga reynslu helstu stjórnenda á sviði fasteignaþróunar, alverktöku, hönnunarstjórnunar, eftirlits og stjórnunar hefðbundinna verklegra framkvæmda.
Orðið Ans þýðir á gömlu máli "svar" og skýrskotar til þess að við leitumst við að hafa svar við kröfum og væntingum viðskiptavina okkar á sviði verklegra framkvæmda, verkefnisstjórnunar og nýsköpunar. Það er trú okkar að bestu og hagkvæmustu lausnir fáist með nánu samstarfi milli verkkaupa, verktaka, hönnuða, fjármögnunaraðila yfirvalda og annarra aðila tengda verkefninu.