Höfuðáherslan í nálgun Ans á nýju verkefni er að meta þarfir verkkaupans og leita leiða til þess að hámarka árangur af verkefninu með því að samstilla þekkingu og reynslu verkkaupans, verktakans, hönnuða, undirverktaka og annarra aðila að verkefninu.
Ans er með fáa trausta lykilaðila á sínum snærum við verkefnisstjórn, en byggir að mestu upp á því að ráða hæfa undirverktaka til einstakra verkþátta. Með þessu fyrirkomulagi getum við tekist á við stór og flókin verkefni en viðhöldum jafnframt sveigjanleika til þess að geta unnið smærri verkefni á hagkvæman hátt. Okkur eru því nánast engin takmörk sett í smæð eða stærð verkefna.
Á síðustu árum höfum við fengist við nokkur stór og flókin verkefni og önnur smærri. Við höfum í alverktöku og aðalverktöku tekið 3 eldri hús í Reykjavík, Ingólfsstræti 1, Þverholt 11 og Grandagarð 8, til gagngerrar endurbyggingar og stækkunar. Auk þess höfum við byggt 48 íbúða nemendagarða, Sjónarhól á Bifröst, til útleigu og komið að byggingu Menntaskólans í Borgarnesi, verslunar á Bifröst og fleiri verkefnum stórum og smáum.
Gott dæmi um stórt, flókið og viðkvæmt verkefni, sem Ans hefur tekið sér fyrir hendur er endurbyggging á Ingólfsstræti 1 í Reykjavík, sem var 3ja hæða skrifstofuhúsnæði, en er nú 8 hæða hótel með 104 herbergjum. Húsið, sem var friðað, 70 ára gamalt hús, upphaflega hannað af Guðjóni Samúelssyni, hefur verið nefnt sem gott dæmi um endurbyggingu gamalla merkra húsa í miðborginni, en er um leið nútíma hús fyrir nútíma starfsemi á þessum stað. Við komum að þessu verkefni alveg frá byrjun, keyptum og fjármögnuðum húsið í samstarfi við núverandi eigendur þess, Miðbæjarhótel, sáum um alla hönnun, verkefnastjórn og framkvæmdir á húsinu þar til það var afhent sem fullbúið hótel til Miðbæjarhótela.
Ans vinnur nú að því að endurinnrétta stóran hluta Aðalstrætis 6-8, sem eitt sinn hýstu Morgunblaðið og síðar Tryggingamiðstöðina, en er nú verið að innrétta sem stækkun á hótel Plaza, sem Miðbæjarhótel eru eigendur og rekstraraðilar að.